Norðurslóðir búa yfir mikilli náttúrufegurð og tækifærum. Þær skipta sífellt meira máli fyrir framtíð okkar allra og verða æ meira áberandi í allri umræðu um náttúruvernd, nýtingu auðlinda og samgöngur.
Hér segir frá för nokkurra Íslendinga á heimsskautsslóðir Norður-Kanada. Þeir könnuðu víðfeðm landsvæði sem mjög fáir Íslendingar hafa heimsótt áður og eru okkur framandi. Hugrekki, þolgæði og áratuga löng reynsla af ferðum um hálendi Íslands kom þeim áfram yfir mjög erfiðar torfærur. Sagt er frá náttúruskilyrðum og fólki sem þeir hittu á leiðinni. Athygli er einnig beint að sögu landkönnuða fyrri alda sem lögðu leið sína um þessar miskunnarlausu en töfrandi slóðir og máttu oft gjalda það dýru verði.
Bókina prýðir mikill fjöldi stórglæsilegra ljósmynda sem teknar voru í leiðangrinum. Auk þess fylgir henni rúmlega klukkustundar löng heimildarkvikmynd.
|
|
|
|
|
|