head05.jpg
Forsíða Leiðin Leiðangurinn Hafa samband Myndefni English
Fréttir
Hafa samband
Tenglar
Styrktaraðilar
Undirbúningur/breytingar

Góðar móttökur í Gimli 13. apríl 2006
Það er skemmst frá því að segja að ferðin frá Yellowknife gekk vel.
Í Winnipeg biðu okkar eiginkonurnar sem fylgdu okkur það sem eftir var ferðar niður til Shelburne þar sem bílunum var skipað út til Íslands. Frá Winnipeg héldum við til
Gimli og er óhætt að segja að móttökurnar þar hafi verið ógleymanlegar.
Fyrst um kvöldið tók á móti okkur á heimili sínu Svenni flugstjóri og Marie kona hans. Okkur var ekið strax á sveitaball sem Íslendingar héldu þarna rétt við bæinn.
Mikið fjölmenni var þar bæði fólk af íslensku bergi brotið og Kanadamenn og skemmtum við okkur hið besta fram eftir nóttu.
Daginn eftir tók fólk því rólega og við notuðum tímann til að skoða okkur um í nágrenninu. Það var svo mikil grillveisla haldinn heima hjá Svenna og fjölskyldu um kvöldið. Þau komu þar með þá hugmynd að halda myndasýningu og smá kynningu á ferð okkar um norðurhéruð Kanada og búa til dreifibréf og dreifa um bæinn til að kynna þessa myndasýningu.

Áður en myndasýningin hófst bauð ræðismaður Íslands í Kanada, Atli Ásmundsson og kona hans öllum leiðangursmönnum og eiginkonum þeirra til kvöldverðar. Hann bauð einnig öllum gestum myndasýningarinnar upp á kaffi og meðlæti.
Myndasýningin virtist falla í góðan jarðveg hjá viðstöddum og var salurinn fullur út úr dyrum. Einstaklega þótti okkur gaman að hitta fólk sem búið hafði þarna alla ævi en talaði samt góða Íslensku.
Tammy Axelson forstöðukona Íslendingasafnsins þar sem kynningin var haldin tók einnig vel á móti okkur, aðstoðaði okkur á myndasýningakvöldinu og fór í gegnum safnið með okkur daginn eftir og einnig í skóla í Gimli þar sem ferðin var kynnt fyrir nemendum.

Að morgni næsta dags var haldið áleiðis til Shelburne, því um 4000 km. voru eftir.
Áhveðið var að koma við og kíkja á hina mikilfenglegu Niagara fossa, sem við sáum ekki eftir þó að um 350 km. útúrdúr hafi verið um að ræða (hvað eru 350 km á 20.000
kílómetra leið?!).

Mikið þótti okkur undarlegt að sjá hversu langt var á vorið liðið þegar við komum þarna niður eftir aftur og algjör viðsnúningur á veðri, 15 - 20° frost 5 vikum áður en 17° hiti og
sólskin þegar við komum til baka.

Í Shelburne skildum við við bílana á hafnarbakkanum og var það óneitanlega skrítin tilfinning eftir að hafa haldið til í þeim allan þennan tíma eða um 7 vikna skeið. Erum við allir sammála um hversu miklir yfirburðabílar þessir Fordar eru.

Þegar þetta er skrifað erum við öll komin heim og við strákarnir strax farnir að undirbúa ný ævintýri.

Að lokum viljum við þakka öllum þeim þúsundum manna sem sent hafa okkur tölvupóst og hvatningarskeyti fyrir áhugann á þessari ævintýraferð okkar.


Svenni, Marie og fjölskylda



Ekki veitti af því að taka svolítið til í bílunum eftir ferðalagið



Í Gimli í blíðskaparveðri



Ómar að lýsa leiðinni sem farin var fyrir skólakrökkum í Gimli



Dóri, Ómar og Kalli svara spurningum nemenda



Niels Kristjánsson sérlegur aðstoðarmaður okkar í Kanada



Mikill áhugi var hjá sumum að sjá bílana og fræðast um hvernig þeir eru byggðir upp



Stjáni að svara spurningum



Það þótti mikið sport að fá að setjast upp í bílana og skoða siglingartækin






Nilli að sýna skólastjóranum einn bílinn



Tammy Axelson forstöðukona Íslendingasafnsins í Gimli og konsúll Íslendinga á svæðinu



Auglýsingaplaggið sem dreift var um bæinn



Farið yfir leiðina fyrir gesti



Gimli



Vegna fjölda áskorana kemur hér ein mynd af henni Blue berry en hún bættist í hópinn um miðbik ferðarinnar en það er Huski hundur sem við fengum í Paulatuc



Við fæðingarstað Vilhjálms Stefánssonar



Minnisvarði reistur til heiðurs hins mikla landkönnuðar Vilhjálms Stefánssonar



Minningarorð



Anna við minnismerkið



Niagara fossar



Dóri og Kalli við fossana



Niagara fossarnir og stórhýsi bæjarins sem stendur við þá



Ásrún, Anna, Stjáni og Kalli



Sibba, Diljá, Kalli, Anna og Ómar







Kalli flottur í miðborg Toronto



Miðborg Toronto



Fordinn við sjónvarpsturninn í Toronto sem er eins konar "trade mark" Torontoborgar



CN turninn í Toronto

















































<< til baka
FORSÍÐA :: LEIÐIN :: LEIÐANGURINN :: HAFA SAMBAND :: MYNDIR