head15.jpg
Forsíða Leiðin Leiðangurinn Hafa samband Myndefni English
Um leiðangurinn
Bílarnir
Leiðangursmenn

Leiðangurinn

Tilgangur ferðarinnar er tvíþættur.
Við viljum annars vegar sýna íslensku þjóðinni og heiminum öllum, hluta þess landsvæðis sem Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður fór um. Þetta er landsvæði sem flestir þekkja aðeins úr bókum hans eða hreinlega alls ekki.

Við viljum líka sýna fólki, hvernig hægt er að nema land á þann hátt sem við höfum gert á fjöllum og jöklum Íslands. Þetta er gott tækifæri til að kynna menningu íbúanna, sýna sérstöðu þeirra í norðrinu og tengslin milli Íslendinga og Kanadamanna. Það er um margt einstakt hvernig fjallamönum tekst að fara um á jeppunum sínum og aka yfir landsvæði sem virðast engum fær nema fuglinum fljúgandi. Það er okkur mikilvægt að kynnast og um leið opna þetta land á nýjan hátt fyrir umheiminum og því mannlífi sem þarna er.

,,Ég las fyrst um Vilhjálm Stefánsson í sjálfsævisögu hans sem var til á æskuheimili mínu’’ segir Ómar Friðþjófsson leiðangursstjóri. ,, Mig hefur alltaf síðan langað að skoða þetta landsvæði sjálfur og ekki síður að sýna það öðrum.’’

Það eru sex manns í leiðangrinum, auk aðstoðarmanna. Lagt verður upp í janúar 2005.

Undirbúningur.
Það er rúmt ár síðan undirbúningur ferðarinnar hófst fyrir alvöru. Leiðin hefur verið ákveðin. Það er búið að manna leiðangurinn og skipuleggja hvaða tæki og útbúnað þarf til leiðangursins.

Í mars fóru tveir leiðangursmanna til Kanada að ganga frá tilskildum leyfum, funda með heimamönnum og kanna aðstæður frekar. Grænt ljós fyrir ferðina var fengið frá Kanadiska sendiráðinu í Reykjavík í maí 2003. Fjárhagsáætlun leiðangursins hljóðar uppá rúmar 36 milljónir króna. Við ráðgerum að fá fjármagn til ferðarinnar frá fyrirtækjum og úr opinberum sjóðum á Íslandi og í Kanda.
Við áætlum jafnframt 1.8 milljónir í undirbúningsstyrk, fyrir ferðalög og starfsmann leiðangursins.


FORSÍÐA :: LEIÐIN :: LEIÐANGURINN :: HAFA SAMBAND :: MYNDIR